z-logo
open-access-imgOpen Access
Lokun íslensku miðaldaklaustranna
Author(s) -
Steinunn Kristjánsdóttir
Publication year - 2021
Publication title -
ritröð guðfræðistofnunar
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
ISSN - 2298-8270
DOI - 10.33112/theol.53.6
Subject(s) - physics
Stofnár þeirra fjórtán klaustra sem starfrækt voru í lengri eða skemmri tíma á Íslandi á miðöldum eru í flestum tilfellum þekkt en tímasetning og ástæður lokunar þeirra síður. Flestum, alls níu, var lokað í kjölfar siðaskiptanna um miðja sextándu öld en það gerðist ekki í einni svipan, heldur smám saman á tímabilinu frá 1539–1554. Nokkrum klaustranna hafði verið lokað löngu fyrr af ýmsum ástæðum en einkum þó vegna þeirra pólitísku deilna sem urðu um skiptingu veraldlegs og kirkjulegs valds í landinu á þrettándu öld. Hér er reynt að ná fram heildarmynd af lokun íslensku miðaldaklaustranna, um leið og skoðað verður með hvaða hætti lokunin átti sér stað í hverju tilviki fyrir sig, hvenær og hvers vegna. Stuðst verður við ritaðar heimildir sem veita vísbendingar um afdrif klaustranna en einnig er tekið mið af niðurstöðum úr fornleifauppgrefti á rústum Skriðuklausturs. Engu klaustri var lokað vegna áfalla eða hamfara. Vöxtur og viðgangur þeirra virðist í öllum tilvikum hafa verið undir kirkjulegum yfirvöldum kominn hverju sinni, enda þótt lokanirnar hafi borið að með ólíkum hætti, eins og hér er rakið.

The content you want is available to Zendy users.

Already have an account? Click here to sign in.
Having issues? You can contact us here