
Kynusli í kirkjunni. Hinsegin samhengi, mannréttindi og trans Jesús
Author(s) -
Sólveig Anna Bóasdóttir
Publication year - 2020
Publication title -
ritröð guðfræðistofnunar
Language(s) - Danish
Resource type - Journals
ISSN - 2298-8270
DOI - 10.33112/theol.51.5
Subject(s) - theology , art , philosophy
Greinin skiptist í þrjá meginkafla. Í þeim fyrsta er fjallað um umdeilda myndbirtingu af trans Jesú á vegum fræðsludeildar íslensku þjóðkirkjunnar haustið 2020. Umfjöllun um hana er fléttuð saman við gagnrýni á gagnstæðukynjahyggju sem liggur til grundvallar kristnum skilningi á kynferði, kynhneigð og kynvitund.Í miðhlutanum er fjallað um félagslegt samhengi myndbirtingarinnar og sjónum beint að mannréttindabaráttu hinsegin fólks ásamt nýlegum íslenskum lögum um kynrænt sjálfræði. Í síðasta hlutanum eru svo viðbrögð tveggja íslenskra guðfræðinga og fræðimanna við myndinni tengd hinsegin samhenginu. Jafnframt eru þau tengd við kristna orðræðu í sam-tíma okkar um mikilvægi þess að leyfa félagslegu samhengi að hafa áhrif á guðfræðina.