
Réttlát ást. Barátta fyrir viðurkenningu samfélags og kirkju á ást, kynverund og löglegri sambúð homma og lesbía á tveimur öldum
Author(s) -
Sólveig Anna Bóasdóttir
Publication year - 2021
Publication title -
ritið
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
eISSN - 2298-8513
pISSN - 1670-0139
DOI - 10.33112/ritid.21.2.7
Subject(s) - physics , nuclear chemistry , materials science , analytical chemistry (journal) , chemistry , chromatography
Greinin snýst um réttláta ást sem er ástarhugmynd sem fræðimenn jafnt sem aðgerðasinnar hafa nýtt í baráttunni fyrir viðurkenningu á mannréttindum hinsegin fólks. Í fyrri hluta greinarinnar er hugmyndin um réttláta ást sett í hugmyndasögulegt samhengi og fjallað um gagnrýni femínista á óréttlæti og ofbeldi sem viðgengst á einkasviðinu. Því næst er fjallað um breyttar ástarhugmyndir í framsetningu þriggja fræðimanna, Irvings Singer, Anthonys Giddens og Christinar E. Gudorf. Singer bendir á að vestrænar ástarhugmyndir séu undir áhrifum tveggja meginstrauma: hughyggju og raunhyggju, en þau Giddens og Gudorf einblína á samtímann og þrá fólks eftir að umbreyta ástinni og nánum samböndum og laga hvort tveggja að gildum um frelsi, sjálfræði og réttlæti.Í síðari hlutanum er sjónum beint að umræðu um ástir einstaklinga af sama kyni á tveimur öldum. Á ofanverðri 19. öld börðust hommar í Þýskalandi og Englandi fyrir viðurkenningu á homogenic ást sinni – án sýnilegs árangurs. Réttri öld síðar var umhverfið og menningin víða gjörbreytt og meiri vilji til að umbylta viðhorfum jafnt sem lögum um samkynhneigð og borgaraleg réttindi hinsegin fólks. Lykilatriði í þeim breytingum var nýr skilningur á ástinni þar sem réttlæti, frelsi og sjálfræði voru sett á oddinn.