
Ekki eins og það á að vera. Merking syndahugtaksins í kristinni trúarhefð fyrr og nú
Author(s) -
Arnfríður Guðmundsdóttir
Publication year - 2020
Publication title -
ritið
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
eISSN - 2298-8513
pISSN - 1670-0139
DOI - 10.33112/ritid.20.3.2
Subject(s) - physics , inga , art , nuclear chemistry , chemistry , botany , biology
Í greininni verður rakin sagan af þróun syndahugtaksins í kristinni trúarhefð, með áherslu á hugmyndir sem tengjast siðbótarmanninum Marteini Lúther og guðfræðinga sem byggðu á siðbótarhugmyndum hans. Það sem einkennir helst hugmyndir Lúthers er sá greinarmunur sem hann gerði á syndahugtakinu í eintölu og fleirtölu, þar sem eintalan vísar til ástands og fleirtalan til verka sem eru afleiðinginar hins synduga ástands. Sá guðfræðingur fornkirkjunnar sem hafði mest áhrif á Lúther var Ágústínus biskup í Hippó, en í svari sínu til Erasmusar frá Rotterdam byggði Lúther á kenningum Ágústínusar um erfðasyndina og ánauð viljans. Í kjölfar upplýsingarinnar var farið að efast um að viðteknar hugmyndir um syndina stæðust skoðun en gagnrýnin beindist einkum að hugmyndinni um erfðasyndina.Á 20. öld komu fram ferskar hugmyndir um syndina hjá guðfræðingum sem meðal annars voru undir sterkum áhrifum frá tilvistarheimspekinni. Milli 1960 og 1970 urðu kaflaskil í kristinni trúarhefð með tilkomu guðfræðinga sem kölluðu eftir róttækri endurskoðun á guðfræðikenningum liðinna alda í ljósi sögulegra aðstæðna, þar með talið túlkun syndahugtaksins. Í lok greinarinnar verður sjónum beint að túlkun tveggja guðfræðinga sem fjalla um merkingu og hlutverk syndarinnar í samhengi kristinnar trúar í upphafi 21. aldar, út frá sjónarhorni femínískrar og hinsegin (e. queer) guðfræði.