z-logo
open-access-imgOpen Access
„Allt sem hefur verið til, heldur áfram að vera til“
Author(s) -
Stefán Ágústsson
Publication year - 2020
Publication title -
ritið
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
eISSN - 2298-8513
pISSN - 1670-0139
DOI - 10.33112/ritid.20.2.1
Subject(s) - scanning electron microscope , physics , nuclear chemistry , humanities , materials science , art , chemistry , composite material
Sú náttúrutrú sem einkennir sjálfsævisögulegt verk Þórbergs Þórðarsonar, Steinarnir tala (1958), hefur verið talin sérstæð og hefur vakið athygli þeirra sem skoðað hafa verk hans. Hún hefur jafnan þótt til marks um þá fornu menningu sem einkenndi heimahaga skáldsins í Suðursveit; menningu sem að sögn Þórbergs sjálfs, var óðum að hverfa vegna vaxandi efnishyggju. Það hefur því virst nærtækt að draga þá ályktun að Þórbergur hafi ætlað verki sínu að koma í veg fyrir að menningin sem hann ólst upp við yrði að eilífu gleymd. En fleira kann að hafa vakað fyrir honum. Svo er að sjá sem Þórbergur hafi greint sameiginlega þætti með menningunni sem hann ólst upp við og hugmyndum dulspekihreyfinga sem hann kynntist sem ungur maður í Reykjavík á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar. Í þessari grein er lögð áhersla á ýmsar kenningar Guðspekifélagsins sem var stofnað árið 1875. Óhætt er að fullyrða að þær hafi skipt sköpum í þeirri heimsmynd sem Þórbergur kom sér ungur upp og fylgdi honum allt til æviloka. Blavatsky einn stofnenda félagsins reyndi að sýna fram á að menning og trúarbrögð heimsins ættu sameiginlegan uppruna í fornum vísdómi (e. ancient wisdom) eins og hún kallaði það. Samanburður á þeirri náttúrutrú sem birtist í Steinarnir tala og kenningum guðspekinnar leiðir í ljós að menning sú sem Þórbergur ólst upp við var ekki eins einstök og menn hafa talið. Sú niðurstaða styrkir þá hugmynd sem hefur notið vaxandi fylgis fræðimanna, meðal annars á sviði hugrænna fræða, að náttúrutrú sé ekki einkenni frumstæðra eða fábreyttra samfélaga heldur fremur einkenni á mannlegu eðli.

The content you want is available to Zendy users.

Already have an account? Click here to sign in.
Having issues? You can contact us here