z-logo
open-access-imgOpen Access
Laxdæla saga og siðferðilegt uppeldi í skólum
Author(s) -
Atli Harðarson,
Ólafur Páll Jónsson,
Róbert Jack,
Sigrún Sif Jóelsdóttir,
Þóra Björg Sigurðardóttir
Publication year - 2018
Publication title -
netla
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
ISSN - 1670-0244
DOI - 10.24270/serritnetla.2019.14
Subject(s) - physics , chemistry , crystallography
Rannsóknin sem hér segir frá er hluti af stærra verkefni sem fjallar um samspil bókmenntakennslu og siðferðilegs uppeldis. Það var skipulagt með hliðsjón af rannsóknarverkefni við The Jubilee Centre for Character and Virtues við háskólann í Birmingham á Englandi. Í þessari grein er fjallað um tvær eftirfarandi spurningar sem báðar varða orðaforða sem notaður er til að tala um siðferði:Hvers vegna er mikilvægt að efla siðferðilegan orðaforða unglinga?Er hægt að nota Laxdæla sögu sem námsefni til að kenna unglingum orðaforða sem þeir geta notað til að tala um siðferðilegar dygðir og lesti?Fyrri spurningunni er svarað með vísun í skrif um siðfræði og siðferðilegt uppeldi og færð rök fyrir því að vald á orðaforða til að ræða og hugsa um siðferði sé mikilvægur hluti af siðferðisþroska.Seinni spurningunni er svarað með rannsókn sem var gerð í þrem grunnskólum þar sem stytt útgáfa af Laxdæla sögu var kennd á unglingastigi. Við lögðum próf fyrir nemendur bæði áður en kennslan hófst og eftir að henni lauk. Auk megindlegra gagna sem var aflað með þessum prófum söfnuðum við eigindlegum gögnum með heimsóknum í kennslustundir, viðtölum við kennara og samræðum við rýnihópa nemenda.Greining á niðurstöðum prófanna benti til þess að kennslan hefði bætt skilning nemenda á orðaforða um siðferðilegar dygðir. Í viðtölum við kennarana kom fram að þeim þótti umfjöllunin um orðaforðann ekki taka tíma frá yfirferð sögunnar, heldur greiða fyrir henni og gera hana auðveldari. Samtöl við rýnihópa nemenda staðfestu að yfirferðin bætti við þann orðaforða sem þeir höfðu til að ræða um siðferðileg efni. Svarið við seinni spurningunni er því að vel má nota Laxdæla sögu sem námsefni til að auka siðferðilegan orðaforða.

The content you want is available to Zendy users.

Already have an account? Click here to sign in.
Having issues? You can contact us here