z-logo
open-access-imgOpen Access
Orðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs: Langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleika
Author(s) -
Hrafnhildur Ragnarsdóttir
Publication year - 2019
Publication title -
netla
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
ISSN - 1670-0244
DOI - 10.24270/netla.2018.15
Subject(s) - physics
Greinin fjallar um orðaforðahluta rannsóknar á þróun máls og læsis meðal íslenskra barna á aldrinum 4 til 8 ára. Um er að ræða viðamikla langtímarannsókn á f lestum þáttum málþroska og tengslum hans við þróun læsis og félagsþroska. Til að bæta úr skorti á íslenskum mælitækjum fyrir orðaforða var útbúið orðaforðapróf fyrir börn á aldrinum 4 til 8 ára, kallað Í sl -PPV T.Markmið þess hluta rannsóknarinnar sem greinin fjallar um var að af la vísbendinga um vaxtarhraða orðaforða íslenskra barna á mörkum leik- og grunnskóla, kanna stöðugleika mælinga með nýja orðaforðaprófinu milli ára og meta réttmæti þess. Þátttakendur voru 222 börn í tveimur aldurshópum sem sköruðust í 1. bekk. Í yngri hópnum voru 111 börn, 55 stúlkur og 56 drengir, sem fylgt var eftir við 4, 5, 6 og 8 ára aldur. Í þeim eldri voru 46 stúlkur og 65 drengir prófuð með orðaforðaprófinu við 6 og 7 ára aldur. Munur á meðalorðaforða hópanna tveggja í fyrsta bekk var ekki marktækur og því hægt að sameina þá í einn. Niðurstöður sýndu að orðaforði barna vex hratt á þessu aldursbili en jafnframt birtust vísbendingar um mikinn einstaklingsmun strax við 4 ára aldur. Áreiðanleiki og réttmæti Ísl-PPVT reyndist vera fullnægjandi; prófið sýndi marktæka fylgni við aðra orðaforðamælingu (Orðalykil), mælingar á málfræðiþekkingu öll árin, við hlustunarskilning í leikskóla og við lesskilning í 4. bekk. Eins og fjölmargar erlendar rannsóknir sýnir rannsóknin því fram á tengsl orðaforða frá 4 ára við lesskilning og aðra þætti læsis allt upp á miðstig grunnskóla. Í ljósi þess hve mikilvæg undirstaða er lögð á þessum árum fyrir síðari lesskilning og námsárangur hlýtur að vera forgangsatriði að finna þau börn sem standa höllum fæti ekki síðar en við 3 til 4 ára aldur, fylgjast grannt með þeim og tryggja viðeigandi stuðning og námsaðstæður til að fyrirbyggja námsörðugleika síðar.

The content you want is available to Zendy users.

Already have an account? Click here to sign in.
Having issues? You can contact us here