z-logo
open-access-imgOpen Access
Mat nýliða á gagnsemi leiðsagnar í starfi kennara
Author(s) -
María Steingrímsdóttir,
Guðmundur Engilbertsson
Publication year - 2018
Publication title -
netla
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
ISSN - 1670-0244
DOI - 10.24270/netla.2018.3
Subject(s) - physics , art , zoology , biology
Í greininni er fjallað um íslenskan hluta norrænnar rannsóknar á nýliðum í grunn- og framhaldsskólum – Nordment1 . Rannsóknin var unnin í samstarfi fræðimanna frá háskólunum í Osló, Gautaborg, Árósum, Turku og Akureyri. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig stuðningur í skólum, skólastjórnun og skipulag innan skóla hefur áhrif á það hvernig nýir kennarar aðlagast kennarastarfinu og hvernig þeir meta eigin færni og þær aðstæður sem skólarnir bjóða þeim. Þýði rannsóknarinnar var kennarar á 1.–3. starfsári eða sem höfðu nýlokið þremur starfsárum. Rannsóknin var megindleg og var sami spurningalisti notaður, þýddur og staðfærður, í öllum þátttökulöndunum. Hér á landi var spurningalistinn sendur til 280 kennara, um þriðjungur starfaði í framhaldsskóla og tveir þriðju í grunnskóla. Niðurstöður eru byggðar á svörum 239 kennara, svarhlutfall var rúm 85%.Meginmarkmið þessarar greinar er að gefa innsýn í þann hluta niðurstaðnanna sem lýtur að leiðsögn nýliða í grunn- og framhaldsskólum á Íslandi. Skoðað er hvernig henni er háttað á fyrsta starfsári og hvort tengsl eru milli formlegrar leiðsagnar, tíðni funda með leiðsagnarkennara og mats nýliða á gagnsemi leiðsagnarinnar.Helstu niðurstöður eru þær að leiðsögn hefur áhrif á starfshætti og líðan nýliða ef hún er veitt af kennara sem hefur svipaðan faglegan grunn og nýliðinn og ef þeir funda reglulega saman á leiðsagnartíma. Um þriðjungur þátttakenda hafði hugleitt að hætta í starfi en aðeins tíundi hluti þeirra hafði þó leitað sér að öðru starfi. Ekki voru tengsl milli hugleiðinga þeirra um brotthvarf og þess stuðnings sem þeir fengu í starfi.

The content you want is available to Zendy users.

Already have an account? Click here to sign in.
Having issues? You can contact us here
Accelerating Research

Address

John Eccles House
Robert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom