Eldri starfmenn og yfirfærsla þekkingar í orkufyrirtækjum
Author(s) -
Elín Greta Stefánsdóttir,
Ingi Rúnar Eðvarðsson
Publication year - 2016
Publication title -
tímarit um viðskipti og efnahagsmál
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
eISSN - 1670-4851
pISSN - 1670-4444
DOI - 10.24122/tve.a.2016.13.2.4
Subject(s) - physics , art , theology , philosophy
Markmið greinarinnar er að kynna rannsókn á því hvernig íslensk orkufyrirtæki standa að yfirfærslu þekkingar eldri starfsmanna til þeirra yngri áður en þeir fyrrnefndu hætta störfum. Efnið hefur lítið verið rannsakað hér á landi og er rannsókninni ætlað að bæta við fræðilega umfjöllun á sviðinu, auka vitund fyrirtækja um mikilvægi yfirfærslu þekkingar og til að stjórnendur geti nýtt niðurstöðurnar í starfi sínu. Rannsóknin byggðist á hálfstöðluðum viðtölum við 18 verk- og tæknifræðinga og stjórnendur. Helstu niðurstöður eru að íslensk orkufyrirtæki hafa ekki mótað markvissa stefnu um yfirfærslu og varðveislu þekkingar, þó svo að sum þeirra hafi hafið undirbúning hennar. Viðmælendur voru sammála um að besta aðferðin við yfirfærslu þekkingar væri að eldri og yngri starfsemenn ynnu saman að verkefnum. Forsenda þess að þar takist vel til er vilji einstaklinga til að miðla, traust og gott samband á milli eldri og yngri starfsmanns og nálægð hvors við annan. Einnig þurfa stjórnendur að hvetja til miðlunar þekkingar. Helstu hindranirnar við miðlun þekkingar voru tímaskortur, verkefnaálag og skortur á markvissu verklagi. Ekki var mikill munur á viðhorfi eldra og yngra starfsfólks til þeirra þátta sem snúa að yfirfærslu þekkingar.
Accelerating Research
Robert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom
Address
John Eccles HouseRobert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom