Ávöxtun íslenskra hlutabréfa í aðdraganda og kjölfar hruns
Author(s) -
Gylfi Magnússon
Publication year - 2012
Publication title -
tímarit um viðskipti og efnahagsmál
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
eISSN - 1670-4851
pISSN - 1670-4444
DOI - 10.24122/tve.a.2012.9.1.3
Subject(s) - physics
Í fyrri rannsókn höfundar var sýnt fram á að ávöxtun hlutabréfa, sem skráð eru í Kauphöll Íslands, hafði nokkur sérkenni um mánaðamót, ársfjórðungamót og áramót. Hlutabréf hækkuðu að jafnaði umtalsvert í verði síðasta viðskiptadag mánaðar en lækkuðu svo aftur fyrsta viðskiptadag mánaðar á árunum frá 2000 til 2006. Þessi rannsókn er framhaldsrannsókn þar sem skoðað er hvort sömu einkenni komu einnig fram í aðdraganda hruns fjármálamarkaðarins, árin 2007 og 2008, eða á endurreistum fjármálamarkaði eftir hrun. Í ljós kemur að svo virðist vera þegar síðustu misserin fyrir hrun eru skoðuð en einungis veikar ef nokkrar vísbendingar eru um slíkt mynstur eftir hrun. Þá er viðfangsefnið einnig skoðað í ljósi viðamikilla gagna sem birst hafa eftir hrun um fjármögnun hlutabréfakaupa á íslenska markaðnum og kerfisbundin kaup fjármálafyrirtækja á eigin bréfum og hlutabréfum tengdra fyrirtækja.
Accelerating Research
Robert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom
Address
John Eccles HouseRobert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom