z-logo
open-access-imgOpen Access
Æviágrip Jónasar H. Haralz
Author(s) -
Höfundur ótilgreindur
Publication year - 2007
Publication title -
tímarit um viðskipti og efnahagsmál
Language(s) - Uncategorized
Resource type - Journals
eISSN - 1670-4851
pISSN - 1670-4444
DOI - 10.24122/tve.a.2007.5.2.4
Subject(s) - physics , humanities , philosophy
Jónas (Halldór) Haralz er sonur hjónanna Haralds Nielssonar prófessors við Háskóla Íslands (1868-1928) og Aðalbjargar Sigurðardóttur kennara (1887-1974). Hann fæddist 6. október 1919 í Vinaminni í Grjótaþorpinu í Reykjavík, en fluttist sex ára að aldri að Laugarnesi fyrir utan Reykjavík ... Jónas naut í fyrstu kennslu í heimahúsum og um tíma árið 1931 við alþýðuskólann á Eiðum ... Árið 1935 settist hann í fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík (stærðfræðideild) og lauk þaðan stúdentsprófi 1938. Sama ár fór hann til náms í Stokkhólmi og lagði fyrst stund á efnaverkfræði við Kungliga Tekniska Högskolan. Árið 1940 söðlaði hann um, las hagfræði, tölfræði, stjórnmálafræði og heimspeki við Stokkhólmsháskóla til ársins 1945 og lauk magistersprófi (pol.mag) í þessum greinum árið 1944.Í stjórnmálafræði naut hann leiðsagnar Herberts Tingsten, sem síðar varð aðalritstjóri Dagens Nyheter, í tölfræði Stens Wahlund, hagstofustjóra Stokkhólmsborgar og síðar ríkisdagsmanns, og í heimspeki prófessoranna Einars Tegen og Konrads Marc‐Wogau.Jónas var kjörinn heiðursdoktor (Dr. econ. honoris causa) við viðskipta‐ og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 1988. Þá hefur hann verið sæmdur stórriddarakrossi íslensku fálkaorðunnar og norskum og sænskum heiðursmerkjum.

The content you want is available to Zendy users.

Already have an account? Click here to sign in.
Having issues? You can contact us here
Accelerating Research

Address

John Eccles House
Robert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom