z-logo
open-access-imgOpen Access
Mat á járnbúskap með mælingu á transferrínviðtökum
Author(s) -
Vigfús Þorsteinsson,
Friðrik E. Yngvason
Publication year - 2010
Publication title -
læknablaðið
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
SCImago Journal Rank - 0.147
H-Index - 12
eISSN - 1670-4959
pISSN - 0023-7213
DOI - 10.17992/lbl.2010.01.265
Subject(s) - traditional medicine , art , medicine
Inngangur: Tilgangur þessarar könnunar var að bera saman gildi mælinga á transferrínviðtökum í sermi (sTfR) og nokkurra annarra blóðrannsókna við greiningu járnskorts. Efniviður og aðferðir: Könnunin var framskyggn og öllum sjúklingum sem fljótandi mergsýni var tekið úr á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri á tímabilinu 1999 til 2003 var heimil þátttaka. Fullgildir þátttakendur voru 89. Næmi, sértæki, skilvirkni og mælikvarði Youdens við greiningu járnskorts var reiknað fyrir ferritín, MCV, CHr, sTfR, sTfR-ferritín-vísi, járnmettun transferríns og Tómasartöflu. Járnskortur var skilgreindur sem ekkert sjáanlegt járn við smásjárskoðun á merg. Niðurstöður: Samkvæmt mælikvarða Youdens reyndist Tómasartafla best við greiningu járnskorts. Hjá þátttakendum sem höfðu CRP <6 mg/L og virtust þannig ekki hafa bólgusvörun reyndist hún mjög sértæk en mjög næm hjá þeim sem höfðu CRP ≥6 mg/L. sTfR-ferritín-vísir reyndist næstbest af samsettum mælikvörðum og af einstökum blóðrannsóknum reyndist sTfR best til að greina járnskort samkvæmt mælikvarða Youdens. Ályktanir: Í þessari könnun reyndust Tómasartafla og sTfR-ferritín-vísir best við greiningu járnskorts. Notkun þessara mælikvarða getur dregið úr þörf á því að taka mergsýni til að greina járnskort.

The content you want is available to Zendy users.

Already have an account? Click here to sign in.
Having issues? You can contact us here
Accelerating Research

Address

John Eccles House
Robert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom