Hljóðþróun íslenskra barna á aldrinum tveggja til átta ára
Author(s) -
Þóra Másdóttir
Publication year - 2020
Publication title -
netla
Language(s) - Ngandi
Resource type - Journals
ISSN - 1670-0244
DOI - 10.24270/netla.2019.11
Subject(s) - physics
Rannsóknir á hljóðþróun íslenskumælandi barna eru á fremur þröngu aldursbili eða komnar til ára sinna. Nauðsynlegt er að afla viðmiða m.a. til að skera úr um hvort börn fylgi aldursbundnum framburðarþroska eða hvort þau séu með frávik í framburði málhljóða. Upplýsingar um hljóðþróun geta auk þess gagnast í rannsóknum og vinnu í tengslum við hljóðvitund, hljóðkerfisvitund og lestrartileinkun. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hljóðþróun á breiðu aldursbili og kanna á hvaða aldri börn tileinka sér samhljóð og samhljóðaklasa, m.a. til að afla viðmiða um dæmigerðan framburðarþroska. Þátttakendur voru 437 börn á aldrinum 2;6-7;11 ára. Gögnum var safnað með því að leggja fyrir Málhljóðapróf ÞM. Helstu niðurstöður voru þær að stígandi er í málhljóðatileinkun barna en þó gætir rjáfuráhrifa fyrir fjögurra ára aldurinn, þ.e. börn hafa náð 90% allra stakra samhljóða strax á aldursbilinu 3;6-3;11 ára. Samhljóðaklasar eru seinna á ferðinni og var 90% markinu ekki náð fyrr en börnin voru á sjöunda ári. Börn tileinka sér fyrst /m/, /n/, /b/, /d/, /l/ og /h/ en þau hljóð sem birtast einna síðast í máli barna eru /r/, /s/, /þ/, [ɣ] og [n̥]. Þegar samhljóðin eru flokkuð eftir myndunarhætti ná börn fyrst tökum á nefhljóðum (ef frá er talið [n̥] í framstöðu orða) en lokhljóð og hliðarhljóð fylgja fast á eftir. Börn eru lengur að tileinka sér önghljóð og sveifluhljóð. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna glögglega hvernig greina má milli barna með dæmigerða hljóðþróun og jafnaldra sem þurfa á talþjálfun að halda. Jafnframt leggja þær grunn að frekari athugunum á tengslum málhljóðamyndunar og lestrartengdra þátta eins og að tengja málhljóð við bókstaf.
Accelerating Research
Robert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom
Address
John Eccles HouseRobert Robinson Avenue,
Oxford Science Park, Oxford
OX4 4GP, United Kingdom